„Við ættum öll að leita náttúrulegra leiða fyrst af því að sjúkdómar ættu að vera undantekning,“ segir Evert Víglundsson líkamsræktarfrömuður. Meira.
Unnur Guðný Gunnarsdóttir hefur einfaldan fatastíl en segist hafa unun af því að setja á sig fjöruga fylgihluti. Smartland heimsótti hana og fékk að skoða gersemarnar.
Skuggabarinn var opnaður formlega á föstudagskvöldið með miklum látum. Mikið af gamla Skuggabarsliðinu var á svæðinu, þar á meðal Maggý sem gekk undir nafninu „húsgagnið“ á Skuggabarnum.
Flugfélagið Wow air bauð til glæsilegrar jómfrúferðar til Parísar og fór nánast full vél frá Keflavíkurflugvelli á fimmtudagsmorgun.
„Ég og fyrrverandi maðurinn minn skildum fyrir nokkrum árum en saman eigum við níu ára gamlan son. Við skiptum barninu á milli okkar viku og viku. Á dögunum komst ég að því að stjúpmóðir sonar míns hafði hjálpað honum að búa til Facebook-síðu fyrir sig. Þau breyttu bara aldrinum á barninu svo þetta gengi upp.“
„Við vorum alls ekki sammála. Ég á kærasta sem er með miklar skoðanir sem er mjög gott,“ segir Sylvía og nefnir að það hafi hafi tekið óratíma að finna sófa í stofuna og hún hafi verið farin að óttast að þau þyrftu að sitja á gólfinu. Meira.